Í starfsliði þingflokksins hefur allt logað í illdeilum í vikunni vegna mismunandi skoðana á Læsis-appinu en hlustendum er hlíft við því, í nýjasta þætti hlaðvarps Kratans.
Þess í stað ræddum við af hverju illa hefur gengið að rafvæða íslenska bílaleiguflotann þrátt fyrir að stjórnvöld hafi sett töluvert fé í ýmsar aðgerðir í því skyni. Einnig var farið yfir nýjustu tíðindi af málefnum Pírata, rætt um fjármál sveitarfélaga, bókun 35 og nýjar nálganir Miðflokksins til að hífa upp fylgið.
