Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra skrifar:
Eftir stjórnarskiptin árið 2024 var ráðist í markvissa vinnu við að draga úr sóun og yfirbyggingu í ríkisrekstri og sporna gegn ósjálfbærri aukningu ríkisumsvifa. Sú vinna er þegar farin að bera ávöxt. Gert er ráð fyrir að útgjöld ríkisins verði komin niður í rúm 30% af landsframleiðslu árið 2027 sem er það minnsta á þessum áratug.
Stöðugildum hjá ríkinu fjölgaði um tæplega 800 árin 2022 og 2023 og um 500 árið 2024. Hægt hefur verulega á þessari fjölgun síðan. Þannig fjölgaði ríkisstörfum aðeins um 100 árið 2025 og í fjárlagafrumvarpi næsta árs er mælt fyrir um sérstakar aðgerðir til þess að tryggja að þessi þróun haldi áfram.
Í desember 2024 bentu afkomuspár fjármálaráðuneytisins til þess að ríkið yrði rekið með viðvarandi halla út þennan áratug. Fyrri ríkisstjórn hafði samþykkt fjármálaáætlun sem gerði ráð fyrir að hallarekstur yrði ekki stöðvaður fyrr en 2028, og í aðdraganda síðustu alþingiskosninga voru óspart gefnir út ófjármagnaðir tékkar sem hafa skapað áskoranir í ríkisrekstri síðan.
Ný ríkisstjórn tók strax í bremsuna. Við byrjuðum á sjálfum okkur: fækkuðum ráðuneytum, hagræddum í efstu lögum stjórnsýslu og skárum niður sporslur til æðstu ráðamanna. Í framhaldinu lögfestum við stöðugleikareglu, settum þak á launahækkanir þjóðkjörinna fulltrúa og hófum markvissa vinnu við fækkun og sameiningu ríkisstofnana. Alls hefur stofnunum verið fækkað um 8% frá því að ný ríkisstjórn tók við en stefnt er að 15% fækkun á kjörtímabilinu.
Ríkisskuldir hafa lækkað og uppfærðar lánshæfiseinkunnir alþjóðlegra matsfyrirtækja sýna að við erum á réttri leið. Í skýrslu sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn birti í sumar kemur fram að sjóðurinn telji ríkisfjármálin „hæfilega aðhaldssöm“ árið 2026 og að ríkisfjármálin „muni styðja við lækkun verðbólgu“. Aðhaldsstig ríkisins mun svo aukast enn frekar árið 2027.
Í fjárlagafrumvarpinu eru lagðar til umfangsmeiri aðhaldsaðgerðir á útgjaldahlið ríkisins en sést hafa um langt skeið. Samhliða eru sóttar auknar tekjur, einkum til fjármálageirans og ferðaþjónustu, en um leið gengið skemmra í gjaldtöku á ökutæki og eldsneyti en síðasta ríkisstjórn boðaði í sínum fjármálaáætlunum.
Stjórnarandstöðuflokkarnir héldu því fram í sumar að forsendur væru brostnar fyrir hallalausum fjárlögum, eins og þetta væri hreinlega ekki hægt. Nú, þegar sannarlega hafa verið lögð fram hallalaus fjárlög í fyrsta skipti í hartnær áratug, er úr öllum áttum kallað eftir aðgerðum sem myndu stórauka útgjöld ríkisins eða rýra tekjur þess. Ríkisstjórnin mun ekki bogna frammi fyrir slíkum kröfum. Við sögðumst ætla að negla niður verðbólgu og vexti með því að hætta að reka ríkið á yfirdrætti og það er nákvæmlega það sem við erum að gera.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 19. september.
