Þórður Snær Júlíusson skrifar:
Kæru félagar.
Í maí var afgreidd þingsályktunartillaga á Alþingi sem færði þjóðinni ákvörðunarvaldið um hvort Ísland eigi að hefja á ný viðræður við Evrópusambandið um aðild. Um mikið hitamál er að ræða og þær fylkingar sem berjast fyrir hvor sinni niðurstöðunni hafa lagt mikið á sig í þeirri baráttu.
Þrátt fyrir að aðild að Evrópusambandinu sé hluti af stefnu Samfylkingarinnar og að rúmlega níu af hverjum tíu flokksmönnum segist ætla að segja Já var mikilvægt að aðdragandi atkvæðagreiðslu sem myndi verða óháður flokkspólitískum forsendum. Þetta er lýðræðisveisla fólksins og hún hefur fundið sér farveg í gegnum félagasamtök hvort á sinni hliðinni.
Já-megin hafa þeir sem eru þegar með fulla sannfæringu um að aðild sé hið rétta fyrir Ísland lengi fundið sér farveg innan Evrópuhreyfingarinnar en einnig spruttu fram ný grasrótarsamtök, SJÁ (með slagorðið Já til að sjá) þar sem áherslan hefur verið á að fá loksins að sjá samning við Evrópusambandið – og taka síðan afstöðu.
Baráttan sem háð hefur verið í gegnum þann vettvang hefur verið jákvæð, innihaldsrík og gríðarlega öflug. Fólk alls staðar að úr samfélaginu hefur sameinast um það markmið að fá meiri upplýsingar svo það geti tekið upplýsta ákvörðun um aðildarsamning í stað þess að þurfa að giska á hvað geti falist í honum.

Fólk er sammála um að innganga í sambandið geti fært okkur annars konar samfélagsumgjörð sem geti hentað þorra fólks og fyrirtækja betur en sú sem við búum við í dag og leyst enn meiri krafta úr læðingi. Ísland hefur alltaf stækkað við hvert skref sem það hefur tekið í alþjóðasamvinnu. Það gerðist við inngönguna í NATO, við inngöngu í EFTA, við gerð EES-samningsins og í öllum hinum skrefunum sem við höfum tekið til að gera okkur gildandi í heiminum. Það er engin ástæða fyrir því að aðild að Evrópusambandinu, náist samningur sem mætir okkar skilyrðum, muni ekki leiða af sér enn eitt stökkið fram á við.
Til þess að vita þurfum við að semja. Til þess að semja þurfum við að segja Já eftir átta daga. Við hvetjum ykkur öll til að leggja hönd á plóg þessa síðustu daga og sigla fleiri tækifærum, valkostum og upplýsingum fyrir Ísland í höfn.
Það er hægt að gera með því að skrá sig sem sjálfboðaliða hjá Já til að sjá og taka þátt í þeim verkefnum sem þarf að sinna til að þjóðin fái að sjá eftir 29. ágúst.
Baráttukveðjur,
Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar.
