Hlaðvarp: „Að vinna í þágu fólksins sem að býr saman í samfélagi“

„Grunnurinn er sá að maður hefur ótrúlega mikinn áhuga á að vinna í þágu fólksins sem að býr saman í samfélagi og gera það að betri stað til að búa á.“ segir Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir þegar hún er spurð út í það hvað það var sem fékk hana til að fara í framboð.

Frambjóðendurnir Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir og Regína Ásvaldsdóttir sem sitja í 3. og 7. sæti lista Samfylkingarinnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar komu í spjall um borgina og kosningabaráttuna framundan. Þær voru á jákvæðu nótunum enda er margt ótrúlega gott sem hefur átt sér stað í borginni undanfarin ár.

Rætt var um frístundamiðstöðvar og græn svæði, leikskólamál og rekstur.

Regína sem hefur nýlokið störfum sem bæjarstjóri í Mosfellsbæ og á að baki langan feril meðal annars við rekstur sveitarfélaga sagði þetta, spurð út í áróður þeirra afla sem sífellt vilja teikna Reykjavík upp sem illa rekið sveitarfélag: „Öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu eru háð byggingarréttartekjum til þess að reka sig…hlutfallið í Reykjavík er jafnvel lægra heldur en í mörgum stærri sveitarfélögunum og þessi orðræða um illa rekna sveitarfélagið er alveg ótrúleg.“

Í seinni hluta samtals þeirra Steinunnar og Regínu við Sonju Huld Guðjónsdóttur og Ástu Guðrúnu Helgadóttur var farið yfir kosningabaráttunni og hvöttu þær stöllur allt Samfylkingarfólk til þess að leggja baráttunni framundan lið. 

Við hvetjum auðvitað alla lesendur Kratans til þess líka og að hlusta á þáttinn hér að neðan eða á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

,

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading