Förum í smá leik. Ímyndum okkur að um langa hríð hefði verið einfalt kerfi í gildi, sem tryggði að gjaldtaka ríkisins af umferð um landið væri í samræmi við notkunina á gatnakerfinu.
Gjöld væru þannig lögð á fyrir hvern ekinn kílómetra, mishá eftir þyngd bílanna, þar sem slit á vegunum helgast af þyngd ökutækja. Við getum kallað kerfið kílómetragjöld.
Þetta kerfi tryggði stöðuga tekjuöflun af samgöngukerfi landsins frá notendum þess, sem rynni til viðhalds og uppbyggingar þessa sama samgöngukerfis.
Nýtt kerfi – margfalt flækjustig og ósanngirni
Ímyndum okkur nú að einn daginn kæmi fram hugmynd um að bylta þessu góða einfalda kerfi.
Í stað kílómetragjalda ætti að taka upp glænýtt kerfi sem bætti við nokkrum lögum af nýjum flækjum til þess að tekjur fengjust til að fjármagna vegina. Og raunar er ekki víst að sömu tekjur myndu fást, né að skipting gjaldanna á milli notenda veganna yrði sanngjörn.
Förum yfir helstu viðbótarflækjurnar og vankantana, lið fyrir lið.
#1 Áfram kílómetragjald fyrir suma
Hugmyndin fæli í sér að kílómetragjaldið yrði lagt niður, en þó ekki alveg, því það þætti áfram skynsamlegt að tryggja innkomu af bílum sem ganga fyrir rafmagni og kílómetragjaldið væri það eina sem kæmi til greina í þeim efnum. Tengiltvinnbílar sem ganga stundum á rafmagni þyrftu einnig áfram að borga einhvern smá hluta kílómetragjaldsins.
#2 Nýir skattar lagðir á jarðefnaeldsneyti
Hins vegar þyrftu bílar sem ganga fyrir bensíni og dísel þyrftu að borga nýja skatta, bensíngjald sem legðist ofan á hvern lítra af seldu bensíni og svo olíugjald sem leggst ofan á hvern seldan lítra af dísilolíu. Hugmyndafræðingar nýja kerfisins leggja til að olíugjaldið verði aðeins lægra en bensíngjaldið. Enginn getur almennilega útskýrt af hverju það er.
#3 Lituð olía fyrir suma
Ekki er talið réttlátt að allir borgi olíugjaldið, því það eru ekki allir að nota vegina. Ákveðið hefur verið að setja það inn í kerfið að ákveðnir aðilar fái fullan afslátt af því, t.d. bændur og björgunarsveitir og verktakar með vinnuvélar. Hvernig á að leysa úr því? Jú, við þyrftum að fara að flytja inn litaða olíu og setja upp sérstakar eldsneytisdælur fyrir litaða olíu á öllum bensínstöðvum landsins.
#4 Tekjurnar dvína smám saman vegna sparneytnari bíla
Þeir sem eru á móti þessari nýju hugmynd og vilja halda sig við kílómetragjöldin benda á að samfara því sem jarðefnaeldsneytisbílar verði æ sparneytnari muni tekjur af nýju eldsneytisgjöldunum dvína, þrátt fyrir að umferð um vegina aukist ár frá ári. Talsmenn nýju kerfisins skila auðu, spurðir hvernig eigi að mæta því.
#5 Gamlir bílar borga meira fyrir að nota vegina
Í nýja kerfinu sem hér er lagt til, með upptöku olíu- og bensíngjalda, er það svo staðreynd að því meira bensíni eða olíu sem bílar eyða, því meira greiðir sá sem ekur fyrir það að keyra vegina. Í þessu nýja kerfi er fólki því beinlínis refsað fyrir það að aka um á gömlum bílum, sem eyða meiru en nýrri gerðir, í stað þess að fólk einfaldlega greiði fyrir sinn akstur í hlutfalli við slitið sem hann veldur á vegunum. Þetta er ósanngjarnt, enda felur þetta í sér að þau sem aka eldri bílum, oft fólk með minna á milli handanna, borgi meira fyrir hvern ekinn kílómeter en þau sem hafa ráð á því að aka um á nýlegum sparneytnum ökutækjum.
Hvaða framtíð viljum við?
Að þessu sögðu – væri tvöfalt gjaldtökukerfi í umferðinni, með olíu- og bensínsgjöldum, kílómetragjaldi (en bara fyrir hreinorkubíla), sölu á litaðri afsláttarolíu og fyrirsjáanlegum vanda við að fjármagna vegakerfið framtíðin sem við viljum? Er þetta kerfið sem við myndum sníða utan um tekjuöflun af umferð ef við byrjuðum frá núllpunkti í dag?
Eða myndum við frekar vilja halda okkur við sanngjarnt, gagnsætt og skilvirkt kílómetragjald fyrir öll ökutæki, sem tryggir að þeir borgi mest sem slíta vegunum mest að tekjur ríkisins af umferðinni á vegum úti verði stöðugar og áreiðanlegar?
Með þetta í huga er e.t.v. hægt að gleðjast yfir því að 2. umræða um kílómetragjaldið hafi klárast á föstudag og að frumvarpið verði því nær örugglega að lögum 1. janúar næstkomandi.
