„Ný samgönguáætlun hefur verið kynnt sem felur meðal annars í sér að kyrrstaða í jarðgangagerð á Íslandi verður rofin. Það er löngu tímabært. Sem Austfirðingur veit ég að fyrir ýmsa er þetta erfiður dagur. Fjarðarheiðargöng hafa verið efst á lista margra Austfirðinga og yrðu mikil samgöngubót en það verða Fjarðagöng um Mjóafjörð líka. Ég hvet fólk til að kynna sér nýja skýrslu Háskólans á Akureyri um þessa tvo gangakosti.“ Svona hófst ræða Eydísar Ásbjörnsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, um nýja samgönguáætlun á Alþingi í gær. Sú breyting er á samgönguáætluninni að hún er nú fullfjármögnuð, en ekki óskalisti sem settur er fram af pólitísku ábyrgðarleysi líkt og tíðkast hefur í tíð fyrri ríkisstjórna.
Skýrsla Háskólans á Akureyri sem Eydís minntist á sýnir að Fjarðagöng eru þjóðhagslega hagkvæmari framkvæmd, þó að báðir gangnakostir hafi marga kosti. Hægt er að lesa skýrsluna hér.
Eydís sagði að hún, sem sveitarstjórnarmaður í Fjarðabyggð, hafi skrifað upp á sameiginlegar ályktanir sveitarfélaga á Austurlandi um að Fjarðarheiðargöng verði sett í forgang. „Gildandi samgönguáætlun gerir ráð fyrir því að fyrst verði farið í Fjarðarheiðargöng og síðan beint í kjölfarið í Fjarðagöng, sem eru stórframkvæmdir sem munu sennilega kosta yfir 100 milljarða króna samanlagt. Sem Austfirðingur hefði ég gjarnan viljað fá þennan óskalista uppfylltan en sé á sama tíma að það er ekki fjárhagslega forsvaranlegt.“
Hún sagðist geta skilið að fyrri ríkisstjórn hafi ekki treyst sér til að standa við stóru orðin. „Síðustu ár hefur líka verið dregið úr og ekki er gert ráð fyrir að hringtenging Austurlands myndi nást fyrr en komið væri vel inn á fimmta áratug aldarinnar. Austurland fær þessa hringtengingu um það bil 350 daga á ári um leið og göngin verða tilbúin. Göngin rjúfa vetrareinangrun Seyðfirðinga og stytta líka akstursleið milli Norðfjarðar og Seyðisfjarðar um heila 64 km. Það er mun betri niðurstaða en áframhaldandi kyrrstaða í jarðgangamálum á Austurlandi og á Íslandi öllu.“
