Í nýjasta hlaðvarpi Kratans er kafað ofan í ótrúlega fyndna, ranga og nett brjálaða forsíðufrétt Morgunblaðsins, nýja ásýnd Sjálfstæðisflokksins sem felur í sér að horfa til fortíðar og hvort það sé ekki bara fínt að fá á sig Kristrúnar Frostavetur. Farið er yfir ríkislögreglustjóramálið, eða JYSK-skandalinn, og skýrt af hverju það þurfi að setja lög um snjallsímabann í skólum.
Þá þarf að snerta á þeim myljandi hagnaði sem Reykjavíkurborg boðar á næstu árum í áætlunum og hefur orðið þeim sem hafa klifað á því að höfuðborgin sé á barmi gjaldþrots mikið áfall. Ný könnun sýndi svo að forsætisráðherra er langvinsælasti ráðherrann og Alma Möller er sennilega vinsælasti heilbrigðisráðherra sem Íslendingar hafa átt, að minnsta kosti á síðustu áratugum.
Í síðari hluta þáttarins ræður Sonja Huld Guðjónsdóttir við Sigurrós Elddísi Huldudóttur um velferðarmál barna.
Hægt er að hlusta á þáttinn hér að neðan:
