Þingstörf héldu áfram í vikunni eftir hlé vegna kjördæmaviku og gengu vel, fjölmörg mál hafa farið í gegnum fyrstu umræðu og inn til nefnda. Mál ríkisstjórnarinnar renna í fínum takti inn í þingið. Umræða um þau hefur gengið hratt fyrir sig og sökum þess hefur urmull þingmannamála komist til umræðu í þessari viku.
Á fimmtudag voru til dæmis ekkert nema þingmannamál á dagskrá, að fráskildu máli atvinnuvegaráðherra um breytingar á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, sem varð að lögum eftir 3. umræðu. Fyrstu lögin eru því afgreidd á þessu löggjafarþingi.
Þessi lagabreyting snerist um að gera ráð fyrir, í lögum, þeim straumhvörfum sem náðst hafa í baráttunni við riðuveiki í sauðfé á undanförnum árum. Nú getur ráðherra sett reglugerð um að það verði skylda sauðfjárbænda að rækta dýr þannig að þau verði ónæm fyrir hinni ömurlegu riðuveiki, en uppræktun stofnsins er möguleg eftir að verndandi arfgerðir gegn riðuveiki fundust fyrir fáeinum misserum.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fór ásamt þingmönnum Suðurkjördæmis, Víði Reynissyni og Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur, á Suðurnes á miðvikudag. Þau áttu góð samtöl við Grindvíkinga á fundi þar seinnipartinn, en þar var meðal annars rætt um nýtt umræðuskjal frá Grindavíkurnefnd um næstu skref í endurreisn Grindavíkur, sem hægt er að kynna sér hér. Svo var opinn fundur í Reykjanesbæ um kvöldið þar sem formaðurinn og þingmennirnir fóru yfir ýmis mál sem brunnu á fundargestum. Alltaf gott að taka samtalið.
Tvennar sérstakar umræður fóru fram á þingi, önnur um menntamál og hin um opinber fjárframlög til stjórnmálaflokka. Okkar fólk tók að sjálfsögðu þátt í þeim og má fræðast nánar um málin hér neðar í fréttabréfinu.

Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Kristrún Frostadóttir og Víðir Reynisson á fundi í Reykjanesbæ. (Mynd fengin að láni frá Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur).
