„Ég er ekkert búin að halla mér aftur í sætinu. Ég geri mér alveg grein fyrir því að það eru mjög háar væntingar til okkar og að við munum þurfa að skila áfram af okkur mikilvægum verkum. Ég held að við þrjár vitum að það eru mjög miklar væntingar til okkar og það voru mjög skýr skilaboð um breytingar í síðustu kosningum. Ég held að formenn allra þessara þriggja flokka átti sig á því að við berum ábyrgð á því að láta þetta ganga upp og gera þetta vel. “
Þetta segir Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, í nýjasta hlaðvarpi Kratans aðspurð um mat á stöðu ríkisstjórnarinnar sem hún leiðir um þessar mundir.
Sú ríkisstjórn, skipuð Samfylkingu, Viðreisn og Flokki fólksins, tók við völdum í landinu í hreinum stjórnarskiptum í desember í fyrra. Ólíkt því sem tíðkast þá hefur samanlagt fylgi stjórnarflokkanna aukist frá því að þeir tóku við og hafði aldrei mælst hærra en það gerði í júlí síðastliðnum, í kjölfar þess að þingi lauk með beitingu 71. greinar þingskaparlaga og samþykkt frumvarps sem leiðrétti veiðigjöld.
Kristrún bendir á að ríkisstjórnin sé merkileg fyrir margar sakir. Það sé langt síðan að Samfylkingin var í ríkisstjórn og hinir tveir flokkarnir voru stofnaðir 2016. Allir flokksformennirnir finni til ábyrgðar og átti sig á væntingunum sem til þeirra eru gerðar. „En við erum líka bara góðar vinkonur, og höfum lagt mikið upp úr því. Við erum mjög ólíkar en mögulega gengur vel þess vegna. Ég er nú þegar búin að læra mjög mikið af þeim og ég held, nei ég veit, að þær hafi gert mig að betri forystumanni.“
Það skipti miklu máli að vera í mjög virku talsambandi og að fresta því aldrei að taka erfiðu samtölin strax. „Ég passa upp á það sem forystumaður og sú sem er með yfirsýn í ríkisstjórninni í heild sinni að taka bara óþægileg símtöl um leið og þarf að taka þau. Ekki leyfa hlutunum að grassera. Maður bara gerir það og fólk kann að meta það.“
