Skýr sameiginleg yfirlýsing sem gæti hreyft við öðrum

Yfirlýsing sex evrópskra utanríkisráðherra um áform Ísraela um frekari hernað á Gaza vakti nokkra athygli í vikunni, en utanríkisráðherrar Íslands, Írlands, Spánar, Noregs, Slóveníu og Lúxemborgar sameinuðust um yfirlýsinguna, sem send var út á miðvikudagsmorgun.

Í yfirlýsingunni er kallað eftir því að ísraelsk stjórnvöld hverfi frá áformum um að bæta í hernaðaraðgerðir sínar á Gaza og öllum hugmyndum um brottflutning íbúa í trássi við alþjóðalög hafnað. Einnig er bent á að Gaza sé hluti Palestínuríkis, sem tilheyri palestínsku þjóðinni. Einnig var kallað eftir því að Ísraelsmenn hleyptu neyðaraðstoð og öðrum varningi án tafar inn á Gaza.

Þingflokksformaðurinn okkar, Guðmundur Ari Sigurjónsson, hrósaði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fyrir þessa öflugu yfirlýsingu og sagði hana eiga hrós skilið, ekki bara fyrir þá sterku afstöðu sem komið var á framfæri heldur einnig fyrir að ná fimm öðrum ríkjum með okkur á yfirlýsingu af þessu tagi.

„Staðan á Gaza er ólýsanlegur hryllingur. Það er brýnt að alþjóðasamfélagið sameinist um að tryggja tafarlausa mannúðaraðstoð og matvælaaðgengi fyrir íbúa svæðisins,“ skrifaði Guðmundur Ari á Facebook-síðu sína á miðvikudag.

„Við sjáum að svona skýr og sameiginleg yfirlýsing getur hreyft við stöðunni. Vonandi munu fleiri ríki fylgja fordæmi ráðherrana sex og leggja sitt af mörkum til að þrýsta á ísraelsk stjórnvöld um að virða alþjóðalög og mannréttindi,“ skrifaði Guðmundur Ari einnig og endurómaði þar þau viðhorf sem komið hafa fram í þingflokki Samfylkingarinnar um málið.

Formaðurinn fundaði með Ísland/Palestínu

Ótengt þessari yfirlýsingu utanríkisráðherranna sex, þá átti Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og flokksformaður fund í vikunni með fulltrúum félagsins Ísland-Palestína um stöðu mála á Gaza og viðbrögð íslenskra stjórnvalda. Gott að ná samtalinu!

,

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading